Gleymdist lykilorðið ?

Rio

Rio , 2011

Frumsýnd: 15.4.2011
Dreifingaraðili: Max Dreifing
Tegund: Ævintýri, Teiknimynd, Fjölskyldumynd
Lengd: 1h 30 min
Aldurstakmark: Leyfð
|

Frá framleiðendum Ice Age-þríleiksins kemur hin frábæra teiknimynd Rio! Sjaldgæfi blái arnpáfinn Blu lifir fátbrotnu lífi í bókaverslun í Moose Lake í Minnesota. Þegar vísindamenn finna kvenkyns bláan arnpáfa í borginni Ríó de Janeiro í Brasilíu er ákveðið að koma þeim saman. Þegar þangað er komið kynnist Blu hinni frjálslegu Jewel og steinfellur fyrir henni, en til þess að vinna hjarta hennar þarf Blu að leysa smá vandamál: flughræðslu. Ævintýri þeirra gengur ekki snurðulaust fyrir sig og kynnast þau mörgum góðum vinum á ferðalagi sínu um hina fögru Ríó. Páskamyndin í ár sýnd í þrívídd með ensku og íslensku tali.