Gleymdist lykilorðið ?

21 Jump Street

Frumsýnd: 20.4.2012
Dreifingaraðili: Max Dreifing
Tegund: Gaman
Lengd: 1h 49 min
Aldurstakmark: Bönnuð innan 14 ára
|

Jonah Hill og Channing Tatum fara á kostum í þessari frábæru grín-hasarmynd, sem vinirnir Schmidt og Jenko. Þeir hafa fyrir löngu síðan sagt skilið við vandamál unglingsáranna og gengið til liðs við lögregluna. Vegna þess hversu ungir þeir líta út fyrir að vera eru þeir valdir í leynilega sveit sem hefur það hlutverk að senda lögreglumenn í dulargervi sem nemendur inn í framhaldsskóla, til að upplýsa þar glæpastarfsemi.

Schmidt og Jenko skipta út byssunum fyrir skólatösku og leggja líf sitt í hættu við að rannska eiturlyfjahring í ákveðnum skóla. En þeir komast fljótt að því að skólalífið hefur gjörbreyst síðan að þeir voru sjáflir stúdentar og hvorugur þeirra er undirbúinn undir það að horfast enn á ný í augun við óttann og kvíðann sem fylgir því að vera táningur.