Gleymdist lykilorðið ?

World War Z

Frumsýnd: 10.7.2013
Dreifingaraðili: SAMfilm
Tegund: Drama, Hasar, Hryllingur, Sumarmyndir
Lengd: 1h 56 min
Aldurstakmark: Bönnuð innan 12 ára
|

TÍMINN ER Á ÞROTUM

Gríðarlega skæð upvakningaplága geisar á Jörðu og ef engin úrræði finnast mun mannkynið þurrkast út á 90 dögum.

World War Z er byggð á samnefndri bók eftir Max Brooks sem kom út árið 2006 og var nokkurs konar framhald bókar hans frá 2003, The Zombie Survival Guide. Í þeirri bók var sagt frá illviðráðanlegri uppvakningaplágu sem herjaði á jörðina og ógnaði tilveru alls mannkyns.

World War Z gerist hins vegar 10 árum síðar þegar uppvakningaplágan er orðin svo óviðráðanleg að allt útlit er fyrir að baráttan við hana, og þar með baráttan fyrir lífi manna á Jörðu, sé endanlega töpuð, enda eru aðeins 90 dagar til stefnu.

Brad Pitt leikur hér Gerry Lane, sérfræðing á vegum Sameinuðu þjóðanna, sem í æsilegu kapphlaupi við tímann reynir að finna einhver ráð til að stöðva ófögnuðinn og forða mannkyninu frá útrýmingu, en þarf um leið að bjarga bæði sjálfum sér og fjölskyldu sinni undan blóðþyrstum uppvakningum sem hreinlega æða yfir allt og alla og eira engu.

Von hans felst í því að uppgötva uppruna plágunnar og að sú vitneskja leiði hann að lausninni áður en tíminn er úti ...

FRÓÐLEIKSMOLAR

• Leikstjóri myndarinnar, Marc Forster, er þekktur fyrir gæðamyndir eins og Monster’s Ball, Stranger Than Fiction, Finding Neverland, The Kite Runner og fleiri góðar.

• Gagnrýnandinn Richard Roeper gefur World War Z þrjár og hálfa stjörnu af fjórum og segir hana afar skemmtilega, „thanks to Brad Pitt and non-stop action.“

• Engin mynd hefur opnað stærra með Brad Pitt í aðalhlutverki

Leikstjóri: Marc Forster