Gleymdist lykilorðið ?

Thor: The Dark World

Frumsýnd: 31.10.2013
Dreifingaraðili: SAMfilm
Tegund: Ævintýri
Lengd: 1h 52 min
Aldurstakmark: Bönnuð innan 12 ára
|

The Dark World verður heimsfrumsýnd á Íslandi þann 31.október og á vafalaust eftir að njóta mikilla vinsælda rétt eins og fyrri myndin um þrumuguðinn Þór.

Það er að sjálfsögðu Chris Hemsworth sem fer á ný með hlutverk þrumuguðsins sem í þetta sinn þarf að kljást við hinn forna, illa og valdagráðuga Malekith, en hann hefur heitið því að eyða veröld guðanna eins og hún leggur sig þannig að heimurinn verði aftur hluti af Svartálfaheimum þar sem myrkrið ríkir.

Til að berjast við þessa ógn og vernda um leið Jane Foster sem Malekith hyggst ná á sitt vald neyðist Þór til að leita til Loka og biðja hann um aðstoð, en eins og flestir vita hefur Loki ekki reynst Þór mikill vinur hingað til.

Það er Christopher Eccleston sem fer með hlutverk Malekiths en annars snúa hér til baka allir helstu leikararnir úr fyrri myndinni, þar á meðal Natalie Portman sem Jane, Anthony Hopkins sem Óðinn og Tom Hiddleston sem hinn viðsjárverði Loki.

FRÓÐLEIKSMOLAR

• Hluti myndarinnar var tekinn upp á Íslandi, í nágrenni Reykjavíkur og við Dettifoss og Skógarfoss. Nokkrir Íslendingar komu einnig beint að gerð myndarinnar og má þar nefna t.d. þá Leif B. Dagfinnsson sem er í framleiðsluhópnum, Guðna Líndal Benediktsson í sviðsmyndateyminu og þá Hauk Karlsson, Eggert Ketilsson og Jóhannes Sveinsson sem sinntu tæknibrellunum.

• Stan Lee, höfundur teiknimyndasagnanna um þrumuguðinn Þór, er einn af framleiðendum Thor: The Dark World og kemur einnig fram í örhlutverki í myndinni sem strætisvagnastjóri.