Gleymdist lykilorðið ?

12 Years A Slave

Frumsýnd: 17.1.2014
Dreifingaraðili: SAMfilm
Tegund: Drama
Lengd: 2h 14 min
Aldurstakmark: Bönnuð innan 16 ára
|

HIN ÓTRÚLEGA SAGA SOLOMONS NORTHUP

Solomon Northup fæddist sem frjáls maður og bjó ásamt fjölskyldu sinni í New York þegar honum var rænt og hann seldur í ánauð til þrælahaldara í New Orleans.

12 Years a Slave, eftir enska meistaraleikstjórann Steve McQueen (Shame, Hunger), hefur fengið frábæra dóma gagnrýnenda og er spáð fjölda tilnefninga til Óskarsverðlauna þegar um þær verður tilkynnt fimmtudaginn 16. janúar.

Myndin er byggð á samnefndri sjálfsævisögu Solomons Northup sem kom út árið 1853, skömmu eftir útkomu hinnar frægu metsölubókar Kofi Tómasar frænda eftir Harriet Beecher Stowe, en þessar bækur eru ekki síst taldar hafa átt þátt í því að bandaríska borgarastyrjöldin (þrælastríðið) braust út árið 1861.

Solomon Northup vann ýmis verkamannastörf í New York til að sjá fjölskyldu sinni farborða, en var einnig liðtækur fiðluleikari. Veturinn 1841 komu tveir menn að máli við hann og vildu ráða hann sem undirleikara í leiksýningu sem þeir sögðust vera með í bígerð. Solomon fylgdi þeim til Washington, en þar yfirbuguðu mennirnir hann og seldu hann síðan í þrældóm sem átti eftir að vara næstu 12 árin ...