Gleymdist lykilorðið ?

Guardians of the Galaxy

Frumsýnd: 31.7.2014
Dreifingaraðili: SAMfilm
Tegund: Hasar, Vísindaskáldskapur, Ævintýri
Lengd: 2h 02 min
Aldurstakmark: Bönnuð innan 12 ára
|

Guardians of the Galaxy er byggð á samnefndum teiknimyndasögum frá Marvel, en segja má að ofurhetjurnar sem þar eiga sviðið séu nokkurs konar geimútgáfur af The Avengers-ofurhetjunum. Þetta eru þau Peter Quill, öðru nafni Star-Lord, sem leiðir hópinn og er leikinn af Chris Pratt, hin græna Gamora sem Zoe Saldana leikur, drumburinn Groot sem leikinn er af Vin Diesel, Drax the Destroyer sem Dave Bautista leikur og hinn ofursvali Rocket sem Bradley Cooper leikur. Í öðrum hlutverkum er heill her þekktra leikara og má þar nefna þau Glenn Close, Michael Rooker, Djimon Hounsou, John C. Reilly, Josh Brolin og Benicio del Toro.