Gleymdist lykilorðið ?

Fading Gigolo

Frumsýnd: 29.8.2014
Dreifingaraðili: SAMfilm
Tegund: Gaman
Lengd: 1h 30 min
Aldurstakmark: Bönnuð innan 12 ára
|

Það eru úrvalsleikararnir John Turturro, Woody Allen, Sharon Stone, Vanessa Paradis, Sofía Vergara og Liev Schreiber sem fara með aðalhlutverkin í rómantíska gamandramanu Fading Gigolo sem frumsýnd verður þann 8. ágúst. Myndin er jafnframt fimmta mynd Johns Turturro sem leikstjóra, en hann skrifaði handritið sjálfur.

Turturro leikur hér hinn lítilláta og tiltölulega hlédræga blómasala Fioravante í New York. Dag einn kemur til hans góður vinur hans, hinn síblanki Murray, og segir honum að hann hafi hitt konu sem er tilbúin að greiða þúsund dollara fyrir nótt með manni sem er fær um að uppfylla kynlífsdrauma hennar. Og Murray, sem bráðvantar peninginn, ákveður að biðja Fioravante um að taka að sér verkefnið, fullviss um að hann valdi því auðveldlega. Sjálfur er Fiorvante efins um að hann sé rétti maðurinn til að sinna konunni en ákveður að lokum að láta á það reyna, aðallega samt til að hjálpa Murray að rétta úr kútnum fjárhagslega.

Í ljós kemur að Fioravante leynir heldur betur á sér í rekkjubrögðunum og reynist hinn fullkomni elskhugi. Það opnar um leið möguleika Murrays á að búa sér til meiri pening og drífur hann til að afla þeim félögum frekari viðskipta á sama sviði. Það reynist tiltölulega auðvelt og vindur fljótt upp á sig. Málin byrja hins vegar að vandast þegar Fioravante verður ástfanginn af einum viðskiptavininum, hinni einmana ekkju Avigal ...