Gleymdist lykilorðið ?

The Hundred-Foot Journey

Frumsýnd: 12.9.2014
Dreifingaraðili: SAMfilm
Tegund: Drama, Rómantík
Lengd: 2h 02 min
Aldurstakmark: Bönnuð innan 7 ára
|

Myndin segir frá indverskri fjölskyldu sem flúði frá Indlandi eftir að veitingastaður þeirra var eyðilagður í óeirðum stjórnarandstæðinga með þeim afleiðingum að fjölskyldumóðirin, sem jafnframt var kokkurinn á veitingastaðnum, lét lífið. Síðan þá hefur fjölskyldufaðirinn leitað að stað í Evrópu þar sem hann og fjölskylda hans gæti hafið nýtt líf og opnað veitingastað. Tilviljun ræður því að fyrir valinu verður hús í litlu sveitaþorpi í Frakklandi sem þó skartar veitingastað sem hlotið hefur Michelin-stjörnu fyrir eldamennskuna. Eigandi þess staðar, Madame Mallory, er hins vegar lítt hrifin af tilvonandi samkeppni Indverjanna og í gang fer atburðarás og barátta sem á þó eftir að fara allt öðruvísi en nokkur hefði getað séð fyrir.