Gleymdist lykilorðið ?

Lífið Í Bænum 8: Lífið Á Vellinum

Frumsýnd: 6.9.2014
Dreifingaraðili: SAMfilm
Tegund: Heimildarmynd
Lengd: 0h 38 min
Aldurstakmark: Leyfð
|

Lífið í bænum 8, Lífið á vellinum verður sýnd í Sambíóunum Keflavík á næstu Ljósanótt.

Myndin verður sýnd reglulega laugardaginn 6. september, sýningartími er 38 mín. ÓKEYPIS ER INN.

Fjallað er um LÍFIÐ Á VELLINUM, fjölskyldulíf hermannanna og starfsemina sem þar fór fram. Myndin er stytt útgáfa af myndinni Huldubyggð í heiðinni sem sýnd var í Sjónvarpinu 1972

LÍFIÐ Í BÆNUM er hreyfimyndasería sem sýnir bæjarlífið á Suðurnesjum, stuttmyndirnar sem þegar hafa verið gefnar út eru 7 og á þessari Ljósanótt 2014 kemur út sú 8. Þær hreyfimyndir sem þegar hafa komið út sýna lífið í árdaga frá Keflavík, Njarðvík og lítilsháttar frá Grindavík. Ef vel tekst til er gert er ráð fyrir að hreyfimyndir frá öllum sveitarfélögum á Suðurnesjum verði gerðar sýningarhæfar á næstu árum. Myndatakan er yfirleitt í höndum bæjarbúa og gesta, Viðar Oddgeirsson hefur séð um að taka efnið saman.