Gleymdist lykilorðið ?

Dracula Untold

Frumsýnd: 3.10.2014
Dreifingaraðili: Myndform
Tegund: Drama, Hasar, Fantasía
Lengd: 1h 32 min
Aldurstakmark: Bönnuð innan 16 ára
|

Þegar Vlad Tepes kemst að því að kraftur hans og hugrekki nægir ekki til að vernda fjölskyldu hans fyrir grimmum óvinum ákveður hann að leita á forboðnar slóðir eftir styrk sem dugar. Það kannast sennilega allir við söguna um Dracula greifa sem Bram Stoker skrifaði og gaf út árið 1897 en hún hefur allar götur síðan getið af sér ótal myndir og ýmsar hliðarsögur sem margar hverjar hafa notið mikilla vinsælda. Í þessari nýjustu mynd um þessa frægu sögupersónu er sagan sögð af því hvernig Dracula varð til og hvers vegna. Það er Luke Evans sem fer með aðalhlutverkið en hann leikur hér hinn hugrakka stríðsmann og prins, Vlad Tepes, sem er fremstur allra í vopnafimi og bardaga og gerir sitt til að verja heimaland sitt, Rúmeníu, gegn innrás Tyrkja og um leið vernda fjölskyldu sína, eiginkonuna Mirenu og ungan son þeirra. En styrkur tyrkneska innrásarhersins er of mikill og þegar Vlad sér fram á að geta ekki sigrað hann í orrustu ákveður hann að leita á forboðnar slóðir eftir þeim mætti sem dugar til sigurs. Þann kraft hefur hann heyrt að sé að finna hátt uppi í fjöllunum þar sem dularfullar og ógnvekjandi vættir búa. Þangað heldur Vlad og finnur að lokum það sem hann leitar að, en sá fundur á líka eftir að kosta hann hið mannlega líf...