Gleymdist lykilorðið ?

Vikingo

Frumsýnd: 28.11.2014
Dreifingaraðili: SAMfilm
Tegund: Heimildarmynd
Lengd: 1h 20 min
Aldurstakmark: Bönnuð innan 12 ára
|

Frá Þorfinni Guðnasyni, leikstjóra Lalla Johns, Sumarlandsins og Músamyndarinnar kemur heimildarmyndin Vikingo.

Í Dóminíska lýđveldinu er þjóđaríþróttin hanaat. Þar tala menn um hanana sína eins og íslenskir hestamenn ræđa gæđinga og stóđhesta. Í myndinni fylgir Þorfinnur sveitunga sínum úr Biskupstungum, Jóni Inga Gíslasyni, í Karíbahafiđ þar sem Jón hefur um árabil ræktađ bardagahana og Vikingo-kyniđ hans er eitt þađ þekktasta í landinu.

Fáir hafa betra nef fyrir sögum en Þorfinnur, hvort sem um er ađ ræđa hagamýs, hesta eđa fólk. Í Vikingo kynnumst viđ ekki bara Jóni Inga heldur líka hópi af öđrum persónum: Unga skóburstaranum Gabriel sem dreymir um ađ eignast Vikinga-hana og verđa frægur ræktandi eins og Jón, Rodolfo sem ađstođar Jón viđ ræktunina, Stóra-Jose sem er vinur Jóns en keppinautur í hanaatinu, og vúdú-norninni Amarilis sem spáir fyrir um úrslitin.

Vikingo er hörkukeyrsla inn í heim hanaatisins, vúdú og vináttu þar sem sögur fléttast saman og örlög ráđast á nokkrum augnablikum í bardagahringnum.

Leikstjóri: Þorfinnur Guðnason