Gleymdist lykilorðið ?

Undir Trénu

Frumsýnd: 31.8.2017
Dreifingaraðili: Max Dreifing
Tegund: Gaman, Drama
Lengd: 1h 29 min
Aldurstakmark: Bönnuð innan 12 ára
|

Agnes grípur Atla við að horfa á gamalt kynlífsmyndband, hendir honum út og meinar honum að umgangast 4 ára dóttur þeirra. Atli flytur inn á foreldra sína sem eiga í deilu við fólkið í næsta húsi. Stórt og fagurt tré sem stendur í garði foreldranna skyggir á garð nágrannanna, sem eru orðin langþreytt á að fá ekki sól á pallinn. Á sama tíma og Atli berst fyrir umgengni við dóttur sína verður deilan um tréð sífellt harðari. Eignaspjöll eru framin og gæludýr hverfa á dularfullan hátt þegar sögusagnir um mann með keðjusög fara á kreik.