Gleymdist lykilorðið ?

Leita

3 Niðurstöður fundust
Pétur Kanína 2
Peter Rabbit 2: The Runaway
Thomas og Bea eru núna gift og búa með Pétri og kanínufjölskyldunni. Pétur, sem er orðinn leiður á lífinu í garðinum, ákveður að fara til borgarinnar þar sem hann kynnist skuggalegum karakterum. Það endar allt í mikilli ringulreið og fjölskyldan þarf að hætta öllu til að koma honum til bjargar.
Dreifingaraðili: Max Dreifing
Frumsýnd: 13.5.2021, Lengd: 1h 33 min
Tegund: Gaman, Ævintýri, Fjölskyldumynd
Aldurstakmark: Leyfð
Leikstjóri:
Will Gluck
Pétur Kanína
Peter Rabbit
Stórskemmtileg kvikmynd úr hugarheimi Beatrix Potter um kanínuna Pétur sem reynir að lauma sér inn í grænmetisgarð nýja bóndans. Þeir há mikla baráttu þar sem bóndinn vill halda dýrunum út fyrir garðinn en Pétur svífst einskis til að fá það sem hann vill.
Dreifingaraðili: Max Dreifing
Frumsýnd: 28.3.2018, Lengd: 1h 35 min
Tegund: Gaman, Ævintýri
Aldurstakmark: Leyfð
Leikstjóri:
Will Gluck
Annie
Annie er ung stúlka sem býr á fósturheimili ásamt öðrum munaðarlausum krökkum og dreymir um að einn góðan veðurdag muni foreldrar hennar koma og sækja hana, enda hefur hún ástæðu til að ætla að svo verði. Dag einn hleypur hún óvart í fangið á frambjóðandanum Will Stacks sem er á atkvæðaveiðum fyrir komandi borgarstjórakosningar.
Dreifingaraðili: Max Dreifing
Frumsýnd: 19.12.2014, Lengd: 1h 58 min
Tegund: Gaman, Drama, Fjölskyldumynd
Aldurstakmark: Leyfð
Leikstjóri:
Will Gluck