Gleymdist lykilorðið ?

L'Elisir d'Amore (2012)

Frumsýnd: 13.10.2012
Dreifingaraðili: SAMfilm
Tegund: Ópera
Lengd: 2h 05 min
Aldurstakmark: Leyfð
|

Anna Netrebko og Matthew Polenzani fara með hlutverk hinnar hverflyndu Adinu og hins ástfangna Nemorinos í nýrri uppfærslu Bartletts Sher á einni merkustu gamanóperu sögunnar. Mariusz Kwiecien leikur hinn rostafengna Belcore liðþjálfa og Ambrogio Maestri leikur Dulcamara, skemmtilega skottulækninn sem útbýr ástarelixírinn. Hljómsveitarstjóri er Maurizio Benini.