Gleymdist lykilorðið ?

The Impossible

Frumsýnd: 21.12.2012
Dreifingaraðili: SAMfilm
Tegund: Drama, Stórslysamynd, Jólamynd
Lengd: 1h 54 min
Aldurstakmark: Bönnuð innan 12 ára
|

Hér er á ferðinni stórkostleg mynd sem segir frá ótrúlegri sögu fjölskyldu sem lendir í náttúruhamförum en myndin hefur hlotið lof gagnrýnenda ásamt því að Naomi Watts til Golden verðlauna fyrir leik sinn í þessari mynd.





Á annan dag jóla árið 2004 olli jarðskjálfti í Indlandshafi gríðarlegri flóðbylgju sem á endanum kostaði yfir 227.000 manns lífið í 14 löndum. Hér er sögð sönn og mögnuð saga fimm manna fjölskyldu sem upplifði þessar náttúruhamfarir.

Það er meistaraleikstjórinn Juan Antonio Bayona (The Orphanage) sem færir okkur þessa sýn á það sem gerðist þennan örlagaríka dag.

Mikil áhersla hefur verið lögð á að endurskapa atburðarásina á sem sannastan hátt, ekki síst hvernig það var að vera á staðnum þegar flóðbylgjan, sem sums staðar náði yfir 30 metra hæð, skall á strandlengjunni án nokkurrar viðvörunar.

Hjónin Henry og Maria eru ásamt sonum sínum þremur, þeim Simoni, Thomasi og Lucasi, stödd í sumarleyfisparadís í Tælandi og hefur bæði haft það gott og skemmt sér vel það sem af er ferðinni.

Um tíuleytið að morgni 26. desember er fjölskyldan ásamt fjölda annarra að njóta lífsins við hótelið sem þau gista á þegar andrúmsloftið breytist skyndilega. Einhver óáþreifanleg ógn er í lofti. Örskömmu síðar skellur há og kraftmikil flóðbylgjan á ströndinni, tætir í sig allt sem fyrir verður og hrífur með sér fólk og brak.

Skelfingin var nánast ólýsanleg og við tók margra mínútna lífsbarátta þar sem hver og einn gat lítið annað gert en að reyna að komast af í ægivaldi flóðsins. Og þegar allt var um garð gengið og flóðbylgjan hafði sjatnað blasti lítið betra við ...





FRÓÐLEIKSMOLAR







• Margir af aukaleikurum myndarinnar eru í raun eftirlifendur náttúruhamfaranna sem myndin greinir frá.

•Naomi Watts er tilnefnd til Golden Globe verðlauna fyrir leik sinn í The Impossible.

•The Impossible er ein aðsóknarmesta mynd allra tíma á Spáni og náði t.a.m. Skyfall (James Bond) ekki toppsætinu þarlendis þrátt fyrir að The Impossible hefði verið á sinni 4 sýningarviku.