
The Incredible Burt Wonderstone
Lengd: 1h 40 min
Steve Carell, Olivia Wilde, Steve Buscemi og Jim Carrey fara allir á kostum í þessari eldhressu og meinfyndnu gamanmynd. Hinn óviðjafnanlegi Burt Wonderstone hefur ásamt Anton, besta vini sínum, rakað inn milljónum á töfrasýningum þeirra í Las Vegas. Nú fer sá tíma að ljúka.
Burt hefur misst allan áhuga á töfrabrögðum eftir að hafa framkvæmt sömu brellurnar kvöld eftir kvöld. Einnig virðist almenningur hafa mun meiri áhuga á að sjá götulistamenn eins og hinn hrokafulla Steve Grey sýna listir sýnar í stað þess að sjá alvörutöfra eins og þá sem Burt hafði sérhæft sig í. Dag einn lendir Burt á botninum og hefst þá ferlið að finna neistann á ný, og styrkja aftur böndin við besta vin sinn sem hann hefur fjarlægst svo lengi.