Gleymdist lykilorðið ?

Don Jon

Frumsýnd: 27.9.2013
Dreifingaraðili: SAMfilm
Tegund: Gaman, Drama
Lengd: 1h 30 min
Aldurstakmark: Bönnuð innan 16 ára
|

Við fyrstu sýn virðist Jon Martello vera með allt á hreinu. Hann hugsar afar vel um stæltan líkamann, leggur sig fram við að hafa allt eins og best verður á kosið í íbúðinni sinni, ekur um á draumakagganum, er sannarlega vinur vina sinna, heimsækir fjölskyldu sína reglulega og reynir að halda í heiðri þá kaþólsku siði sem hann var alinn upp við, í von um að sér verði fyrirgefin feilsporin. Þau feilspor felast annars vegar í því að Don er forfallinn klámfíkill sem líður best með sjálfum sér að horfa á netklám, og hins vegar í því að hann nær sér í nýja stelpu í hverri viku án nokkurra áætlana um að festa ráð sitt og því síður að eignast börn eins og móðir hans vill að hann geri. Dag einn hittir Don hina fögru Barböru Sugarman. Hún er klár, falleg og venjuleg stúlka sem hefur gömul og góð gildi í heiðri. Hún er alin upp við að horfa á rómantískar Hollywoodmyndir og er staðráðin í að finna draumaprinsinn og ríða með honum á hvítum hesti inn í sólarlagið. Hún sem heillar Martello upp úr skónum og í fyrsta skipti á ævinni verður hann ástfanginn upp fyrir haus. Það á hins vegar eftir að reyna verulega á sambandið þegar Barbara kemst að klámfíkn Dons ...