Gleymdist lykilorðið ?

American Hustle

Frumsýnd: 10.1.2014
Dreifingaraðili: SAMfilm
Tegund: Drama
Lengd: 2h 18 min
Aldurstakmark: Bönnuð innan 12 ára
|

Eitursnjall atvinnusvindlari neyðist til að hjálpa alríkislögreglunni við rannsókn spillingarmáls sem snertir bæði mafíuna og háttsetta embættismenn bandarískrar stjórnsýslu. American Hustle er nýjasta mynd leikstjórans Davids O. Russell sem á m.a. að baki verðlaunamyndirnar Silver Linings Playbook, The Fighter og Three Kings. Christian Bale leikur hér blekkingameistarann Irving Rosenfeld sem ásamt aðstoðarkonu sinni og ástkonu, Sidney Prosser (Amy Adams), hefur lengi leikið lausum hala röngum megin við laganna strik. Það kemur hins vegar í bakið á honum þegar alríkislögreglumaður að nafni Richie DiMaso neyðir þau Sidney til að aðstoða sig við að spenna gildru fyrir mafíuna í Jersey í því skyni að koma upp um alvarlegt spillingarmál. Inn í aðgerðina blandast síðan stjórnmálamaðurinn Carmine Polito (Jeremy Renner), sem veit ekki í hverju hann er lentur, og eiginkona Irvings, Rosalyn (Jennifer Lawrence), sem er búin að fá nóg af framhjáhaldi eiginmannsins og hyggst grípa til sinna ráða

• Myndin er lauslega byggð á svokölluðu Abscam-hneyksli sem kom upp í Bandaríkjunum á áttunda áratug síðustu aldar. Það byrjaði með rannsókn alríkislögreglunnar á vörusvikum nokkurra svikahrappa, en þróaðist upp í pólitískan skandal þar sem meira en tugur bandarískra embættismanna var að lokum ákærður fyrir mútuþægni og spillingu.