Gleymdist lykilorðið ?

Pompeii

Frumsýnd: 14.3.2014
Dreifingaraðili: SAMfilm
Tegund: Drama, Hasar, Ævintýri
Lengd: 1h 45 min
Aldurstakmark: Bönnuð innan 12 ára
|

Skylmingaþræll lendir í æsilegu kapphlaupi við tímann við að bjarga sjálfum sér og ástkonu sinni þegar eldfjallið Vesúvíus gýs og grefur borgina Pompeii í eldheita ösku. Kvikmyndin Pompeji er þrívíddarveisla sem gerist árið 79 eftir Krist þegar eldfjallið Vesúvíus hreinlega sprakk í loft upp og gróf bæinn Pompei í margra meta þykkt lag af ösku og gjalli á svo skammri stundu að þeir sem náðu ekki að forða sér í tíma hreinlega stiknuðu í sporunum eða þar sem þeir höfðu leitað skjóls.

Kit leikur þrælinn Milo sem vegna atgervis síns og bardagahæfileika hefur verið gerður að skylmingaþræl, gjörspilltri hástéttinni í Pompei til skemmtunar á hringleikavelli bæjarins. Hann verður ástfanginn af hinni fögru Cassiu, en hún er dóttir vellauðugs kaupmanns sem hefur ákveðið að gefa hana spilltum, rómverskum þingmanni. Til þess mega hvorki Milo né Cassia hugsa, en það er lítið sem þau geta gert til að breyta ákvörðun föðurins.

Allt breytist hins vegar vegar Vesúvíus byrjar að láta á sér kræla og gýs svo með eldspúandi sprengikrafti sem eirir engu. Milo þarf nú ekki bara að bjarga Cassiu frá því að lenda í klóm þingmannsins heldur ógnar hið ægilega eldgos lífi þeirra beggja, svo og öllum íbúum borgarinnar...

• Kit Harington, sem var enginn væskill fyrir, fór í tveggja mánaða, stranga líkamsþjálfun fyrir hlutverk sitt í Pompeji og segist hafa komið sér í það besta form sem hann hefur nokkurn tíma náð.

• Stiklan úr Pompeji er mjög góð og sýnir hluta sjónarspilsins sem í vændum er, en óhætt er að lofa væntanlegum áhorfendum að það sé í meira lagi tilkomumikið.