Gleymdist lykilorðið ?

CAVALLERIA RUSTICANA (Mascagni) / PAGLIACCI (Leoncavallo)

CAVALLERIA RUSTICANA (Mascagni) / PAGLIACCI (Leoncavallo) , 2015

Frumsýnd: 25.4.2015
Dreifingaraðili: SAMfilm
Tegund: Ópera
Lengd: 3h 30 min
Aldurstakmark: Ómetið
|

Mikil hefð hefur skapast fyrir því að sýna þessar tvær óperur saman og hér er á ferðinni uppsetning Davids McVicar, sem notar sama sikileyska þorpið sem sögusvið. Marcelo Álvarez tekur að sér tenórhlutverkin tvö, Turiddu í Cavalleria Rusticana og Canio í Pagliacci. Rae Smith hannaði leikmyndina. Við byrjum í bæjarþorpinu í kringum aldamótin 1900 í Cavalleria og færumst yfir í veitingaskála árið 1948 fyrir ólánsama meðlimi fjölleikahússins í Pagliacci. Eva-Maria Westbroek fer með aðalkvenhlutverkið í Cavalleria og Patricia Racette í Pagliacci en aðalstjórnandi Metropolitan, Fabio Luisi, stjórnar hljómsveitinni.