Gleymdist lykilorðið ?

Walk of Shame

Frumsýnd: 21.5.2014
Dreifingaraðili: SAMfilm
Tegund: Gaman
Lengd: 1h 35 min
Aldurstakmark: Bönnuð innan 12 ára
|

Meghan Miles er fréttaþulur á sjónvarpsstöð og hefur ekki gengið sem best upp á síðkastið. Vegna þessa vilja vinkonur hennar hressa hana við og fá hana til að koma með sér út á lífið eitt kvöldið. Þar skvettir Meghan hins vegar allt of miklu í sig og endar í rúminu hjá bláókunnugum manni í bláókunngu hverfi.

Þegar Meghan vaknar daginn eftir og hringir í símsvarann sinn fær hún þær fréttir að hún eigi að mæta í mikilvægasta atvinnuviðtal lífs síns eftir 8 klukkustundir. Hún hendist því af stað og áttar sig ekki á því fyrr en hún er komin út á götu að hún er stödd í vafasömu hverfi, peningalaus, símalaus, skilríkjalaus, jakkalaus og bíllaus. Og hvað gera konur þá?