Gleymdist lykilorðið ?

Legends of Oz: Dorothy's Return

Frumsýnd: 30.5.2014
Dreifingaraðili: Max Dreifing
Tegund: Teiknimynd, Tónlist, Fjölskyldumynd
Lengd: 1h 32 min
Aldurstakmark: Leyfð
|

Dóratea er komin aftur heim til Kansas, en allt er í rjúkandi rústum eftir hvirfilbylinn sem flutti hana til töfralandsins Oz. Bæjarbúar eru í óða önn að pakka niður eigum sínum og yfirgefa heimili sín þegar Dóratea birtist eins og fyrir töfra aftur í Oz! Stuttu síðar uppgötvar Dóratea að allir gömlu vinir hennar eru í klóm Vonda Hirðfíflsins og að Oz sé nánast í eyði. Hún ákveður að reyna að frelsa vini sína og hefja Oz til vegs og virðingar á ný. Á ferðalagi sínu kynnist Dóratea nýjum vinum, og í sameiningu reyna þau að koma í veg fyrir að Hirðfíflið nái yfirráðum í Oz með því að breyta íbúum þess í strengjabrúður.