Gleymdist lykilorðið ?

Step Up: All In

Frumsýnd: 15.8.2014
Dreifingaraðili: SAMfilm
Tegund: Drama, Rómantík
Lengd: 1h 52 min
Aldurstakmark: Bönnuð innan 7 ára
|

Rómantíska Step Up-dansmyndaserían sem höfundurinn Duane Adler hleypti af stokkunum árið 2006 hefur notið mikilla vinsælda á undanförnum árum og þá að sjálfsögðu hjá þeim sem kunna að meta töfra dansins. Í Step Up: All In endurnýjum við kynnin af mörgum þeim persónum sem komið hafa fram í fyrri myndunum og sýna nú listir sínar á ný.

Dansarinn Sean Asa er kominn til Hollywood þar sem hann vonast til að fá tækifæri til að láta ljós sitt skína. Hann á hins vegar fljótlega eftir að komast að því að það er enginn leikur að fá vinnu í Hollywood sem dansari enda er samkeppnin gríðarleg og mörg þúsund umsækjendur um hvert það starf sem í boði er.

En Sean er ekki mættur á svæðið til að gefast upp og ákveður að stofna danshóp ásamt hinni hæfileikaríku Andie West (úr Step Up 2) og fleiri dönsurum sem áhorfendur muna eftir úr fyrri myndunum. Svo fer að þau ákveða að skrá sig og sitt fólk í danskeppni í Las Vegas þar sem vinningurinn er eigin dansýning í Vegas fyrir hópinn sem vinnur. En samkeppnin er hörð auk þess sem bæði Sean, Andie og allir hinir í hópnum þurfa að glíma við ýmis mál þar sem við sögu koma ástarglæður úr fortíðinni og gamlir keppnautar sem gefast aldrei upp ...