Gleymdist lykilorðið ?

The Hobbit: The Battle Of The Five Armies

Frumsýnd: 26.12.2014
Dreifingaraðili: Myndform
Tegund: Ævintýri, Fantasía
Lengd: 2h 24 min
Aldurstakmark: Bönnuð innan 12 ára
|

The hobbit: The battle of the five armies er síðasta myndin um Bilbó Bagga, Þorinn Eikinskjalda og dvergana þrettán. Föruneytið hefur endurheimt heimkynni dverganna frá drekanum Smeygni, en hafa óafvitandi leyst úr læðingi eina mestu ógn Miðgarðs. Í bræði sinni lætur hann rigna eldi yfir varnarlausa íbúa Vatnabæjar. Á sama tíma verður Þorinn heltekinn af fjársjóðnum sínum og fórnar vináttunni við Bilbó til að tryggja öryggi hans. Bilbó reynir í örvæntingu að fá hann aftur yfir á sitt band, en neyðist að lokum til þess að taka afdrifaríka ákvörðun. Ekki bætir úr skák að hinn mikli óvinur, Sauron, hefur sent hersveitir af orkum til þess að ráðast á Fjallið Eina úr launsátri. Nú verða kynþættir dverga, álfa og manna því að ákveða hvort að þeir vilji sameinast eða tortímast. Bilbó berst fyrir lífi sínu í hinni mikilfenglegu Fimmherjaorrustu á meðan framtíð Miðgarðs hangir á bláþræði.