Gleymdist lykilorðið ?

Lulu

Frumsýnd: 21.11.2015
Dreifingaraðili: SAMfilm
Tegund: Ópera
Lengd: 3h 57 min
Aldurstakmark: Leyfð
|

Tónlistarstjórinn James Levine stýrir nýrri uppfærslu margrómaða listamannsins og leikstjórans Williams Kentridge (The Nose), sem töfrar fram einstaka sýn á óperu Bergs. Marlis Petersen hefur heillað áhorfendur um heim allan með túlkun sinni á titilpersónunni og þeysireið hennar um ranghala ástarinnar, þráhyggjunnar og dauðans. Meðal annarra söngvara í þessari verðlaunauppfærslu má nefna Susan Graham, Daniel Brenna og Johan Reuter.