Gleymdist lykilorðið ?

Doctor Strange

Frumsýnd: 28.10.2016
Dreifingaraðili: SAMfilm
Tegund: Ævintýri, Fantasía
Lengd: 1h 55 min
Aldurstakmark: Bönnuð innan 12 ára
|

Þann 28. október verður fyrsta leikna bíómyndin um taugaskurðlækninn dr. Stephen Vincent Strange frumsýnd, en hann er betur þekktur sem Doctor Strange og kom fyrst fram á sjónarsviðið í Marvel-teiknimyndasögunum árið 1963. Það er óhætt að segja að aðdáendur Marvel-sagnanna hafi beðið spenntir eftir þessari mynd en þar er saga Stephens rakin frá upphafi, eða allt frá því að hann slasast svo illa á höndum í bílslysi að hann verður ófær um framkvæmd hinna nákvæmu skurðaðgerða sinna. Til að leita sér lækninga heldur hann út í heim og hittir að lokum„hinn forna“ sem kennir honum að nota hendurnar og hæfileika sína á alveg nýjan hátt svo úr verður hinn rammgöldrótti og svo gott sem ofurmannlegi Doctor Strange sem verndar upp frá því Jörðina fyrir svartagöldrum illra afla...