Gleymdist lykilorðið ?

Hanaslagur

Frumsýnd: 9.11.2015
Dreifingaraðili: Myndform
Tegund: Teiknimynd
Lengd: 1h 38 min
Aldurstakmark: Leyfð
|

Toto er lítill hani með stóra drauma sem lifir heldur óviðburðarríku lífi á skrautlegum bóndabæ. Hingað til hefur hann gegnt því hlutverki að gala á morgnanna en fljótlega á sá hljómur eftir að gjörbreytast þegar illur bóndi hótar að eyðileggja lífið á heimabýlinu. Hann skorar á besta hanann á býlinu til að keppa á móti verðlaunahananum hans.

Toto verður fyrir valinu og þarf þá skyndilega að finna hugrekkið og slagsmálahanann í sér með aðstoð vina sinna. Hann hefur dreymt lengi um að taka þátt í hanaslögum og sækir ráða frá Rauða hananum, fyrrverandi stórmeistara í sportinu. Með allan bóndarbæinn í húfi fær Toto loksins tækifærið til að sanna fyrir fullt og allt hvað í honum býr, og að stærðin skiptir ekki máli...