Gleymdist lykilorðið ?

Fyrir Framan Annað Fólk

Frumsýnd: 22.2.2016
Dreifingaraðili: Max Dreifing
Tegund: Gaman, Rómantík
Lengd: 1h 27 min
Aldurstakmark: Leyfð
|

Myndin segir frá Húberti sem er hlédrægur auglýsingateiknari og ekki sérlega laginn við að nálgast hitt kynið. Hann verður ástfanginn af Hönnu, sem er í sárum eftir sambandsslit. Til að ganga í augun á henni bregður Húbert á það ráð að herma eftir yfirmanni sínum, sem er óforbetranlegur kvennabósi. Það dugar til að brjóta ísinn, en málin taka fljótlega óvænta stefnu með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.