Gleymdist lykilorðið ?

The House with a Clock in Its Walls

Frumsýnd: 21.9.2018
Dreifingaraðili: SAMfilm
Tegund: Fantasía, Fjölskyldumynd
Lengd: 1h 44 min
Aldurstakmark: Bönnuð innan 9 ára
|

Lewis Barnavelt missir foreldra sína og er sendur til Michigan til að búa með frænda sínum Jonathan. Hann kemst að því að frændinn er seiðkarl, og sogast með honum inn í heim galdra og seiðmögnunar. En það eru fleiri sem búa yfir sambærilegum kröftum, þar á meðal hinn illi Isaac Izard, sem vill valda heimsendi, bara til að sjá hvað gerist eftir á. Til að koma þessu í kring býr hann til töfraklukku með svartagaldri, en klukkan mun halda áfram að ganga svo lengi sem hún er til, og telur niður allt til dómsdags. Izard lést áður en hann gat lokið við smíði klukkunnar, en til allrar óhamingju faldi hann klukkuna heima hjá sér, þar sem Jonathan býr núna. Núna þurfa Lewis og Jonathan að finna klukkuna áður en það er um seinan, og áður en ekkja Isaac, Selena, finnur hana.