Gleymdist lykilorðið ?

Men in Black: International

Frumsýnd: 12.6.2019
Dreifingaraðili: Max Dreifing
Tegund: Gaman, Hasar, Vísindaskáldskapur
Lengd: 1h 55 min
Aldurstakmark: Bönnuð innan 12 ára
|

Þegar MIB-leyniþjónustan fær veður af því að ný tegund geimvera sem geta tekið á sig hvaða mynd sem er hafi uppi áætlun um að taka öll völd á Jörðu með tilheyrandi útrýmingarhættufyrir mannkynið eru þau M og H send út af örkinni til að leysa málið. Það á hins vegar eftir að reynast hægara sagt en gert. H er orðinn nokkuð reyndur í viðskiptum við geimverur en M er nýliði sem er þó alveg sannfærð um að þetta starf sé eins og sniðið fyrir sig. Á það á auðvitað eftir að reyna en þegar sá grunur vaknar að innan MIB-leyniþjónustunnar sé svikari verða málin enn snúnari og hættulegri en nokkur gat séð fyrir.