Andilit Norðursins

Last Days Of The Artic

Leyfð

Kvikmyndategund

Heimildarmynd

Leikstjóri

Magnús Viðar Sigurðsson

Sýningartími

1klst 30mín

Það þekkja nánast allir landsmenn ljósmyndir Ragnars Axelssonar, eða RAXA. Hann hefur verið einn helsti

ljósmyndari Morgunblaðsins frá árinu 1979 og ljósmyndir hans prýða margar af minnisverðustu forsíðum

blaðsins.

RAXI er ævintýramaður sem elskar öfgana sem felast í náttúrunni. Hann byrjaði snemma að taka myndir og

hefur fyrir löngu síðan komið sér upp sérstökum stíl sem hefur vakið eftirtekt á alþjóðavísu.

Eitt helsta einkenni ljósmynda RAXA er hið einstaka samspil manns og náttúru og það er einmitt hjartað í

nýjustu heimildamynd Sagafilm, Last Days of the Arctic.

Áhersla hans á hverfandi lífshætti á norðuhjara veraldar er málefni sem á erindi við heimsbyggð alla.

Myndin segir frá uppvexti RAXA á Kvískerjum í Öræfum þar sem hann byrjaði að taka myndir og fékk áhuga

á því að skjalfesta og mynda þróun og breytingar á lifnaðarháttum manna og dýra í kringum sig.

Myndin fylgir einnig RAXA eftir í leitir og smölun bænda í Landmannalaugaafrétt en ljósmyndasaga hans af

þessari smölun spannar orðið 20 ár.

Stór hluti myndarinnar er tileinkaður grænlenskum veiðimönnum, en á Grænlandi er skoðað hvernig hlýnun

jarðar hefur haft áhrif á daglegt líf innfæddra og 4000 ára gamla veiðihefð. Við hittum það fólk sem fyrst

verður fyrir barðinu á breyttu loftslagi og sjá síðustu daga heimskautsins í þeirri mynd sem fyrri kynslóðir hafa

upplifað það.

Andlit Norðursins er heimild um einstaka lifnaðarhætti sem senn munu hverfa. Ekki er sérstaklega farið út í

orsakir breytinganna eða fordæmingar heldur er áhersla lögð á að segja sögu fólks sem að öllum líkindum

tilheyrir síðustu kynslóð alda og árþúsunda gamalla hefða. Fegurð og mikilfengleiki náttúrunnar spilar

stærsta hlutverkið í myndinni og kvikmyndataka með því allra besta sem sést hefur hér á landi. Myndin er

sýnd í háskerpu og nýtur sín einstaklega vel á hvíta tjaldinu.