Gleymdist lykilorðið ?

Into The Storm

Frumsýnd: 20.8.2014
Dreifingaraðili: SAMfilm
Tegund: Hasar, Spenna
Lengd: 1h 29 min
Aldurstakmark: Bönnuð innan 12 ára
|

Það má segja að móðir náttúra sé í stærsta hlutverkinu í hamfaramyndinni Into the Storm sem frumsýnd verður þann 20. ágúst og lofar góðu. Myndin þykir afar vel gerð þar sem stanslaus spenna og mikill hasar fær áhorfendur til að grípa andann á lofti.

Þótt íbúar bæjarins Silverton í Michigan viti vel að þeir megi eiga von á öflugum stormsveipum öðru hverju yfir sumarmánuðina dettur engum þeirra í hug það sem koma skal daginn sem útskriftarhátíð nemenda í háskóla bæjarins stendur fyrir dyrum.

Skyndilega byrjar að hvessa og rigna og innan nokkurra mínútna myndast yfir bænum öflugir skýstrokkar sem þeyta í byrjun öllu lauslegu upp í loft en ná fljótlega slíkum ofurstyrk að þeir taka að rífa í sig hús og önnur mannvirki þar sem fjöldi fólks hefur leitað skjóls. Þar með breytist undrun og skelfing íbúanna í æsispennandi lífsbaráttu og gríðarlegt kapphlaup við tímann og náttúruöflin ...