Season of the Witch

Season of the Witch

Bönnuð innan 14 ára

Kvikmyndategund

Ævintýri

Leikstjóri

Dominic Sena

Sýningartími

1klst 35mín

Helstu leikarar

Nicolas Cage, Ron Perlman, Claire Foy

Ævintýramyndin Season of the Witch skartar Nicolas Cage og Ron Perlman í aðalhlutverkum og gerist á fjórtándu öld. Riddarinn Behmen (Cage) snýr aftur til heimalandsins eftir krossferð til Jerúsalem, en þegar heim er komið er Svarti dauði að ganga af allri þjóðinni dauðri. Kirkjan kennir göldrum um pláguna og skipar Behmen og Felson (Perlman) að flytja unga konu sem er grunuð um að vera norn til afskekkts klausturs, þar sem munkar eiga að framkvæma blóðfórn til að stöðva pláguna. Heittrúar prestur, auk riddara, embættismanns og þrjósks unglings sem vill sanna sig, bætast í hópinn áður en lagt er af stað, en ferðin á eftir að vera uppfull af yfirnáttúrulegum og hættulegum þrautum sem ferðalangarnir þurfa að lifa af. Á sama tíma eru stríðandi fylkingar á góðri leið með að tortíma hvor annari, allt vegna plágunnar. Ná Behmen og Felson að koma norninni í réttar hendur áður en það er um seinan?