Mortal Instruments: City of Bones er byggð á samnefndri metsölubók Cassöndru Clare, sem um leið er fyrsta bókin í Mortal Instruments-bókaflokknum. Mortal Instruments-bækurnar segja frá hinni ungu Clary Fray (Lily Collins) sem býr á Manhattan ásamt móður sinni. Í sextán ár hefur Clary lifað ósköp venjulegu lífi og telur sig ekki á neinn hátt frábrugðna jafnöldrum sínum.
Þetta á heldur betur eftir að breytast dag einn þegar brotist er inn á heimili Clary og móður hennar er rænt. Í framhaldinu kemst hún að því að hún er engin venjuleg stúlka heldur afkomandi svokallaðra skuggaveiðara (shadowhunters), en þeir lifa í heimi sem er samhliða okkar en ósýnilegur venjulegu fólki og fullur af alls kyns púkum, vampírum og öðrum óvættum. Hlutverk skuggaveiðaranna er að berjast við þessi kvikindi og koma með öllum ráðum í veg fyrir að þau nái að komast yfir í okkar heim.
Og nú þegar Clary veit sannleikann kemur ekkert annað til greina en að ganga í lið með skuggaveiðurunum, ekki bara til að finna og bjarga móður sinni heldur til verndar mannkyninu öllu ...
The Mortal Instruments: City Of Bones
The Mortal Instruments: City Of Bones
Bönnuð innan 12 ára
Kvikmyndategund
Drama, Hasar, Ævintýri
Leikstjóri
Harald Zwart
Sýningartími
2klst 10mín
Helstu leikarar
Lena Headey, Lily Collins, Jonathan Rhys Meyers, Jamie Campbell Bower