Ender's Game

Ender's Game

Bönnuð innan 10 ára

Kvikmyndategund

Hasar, Spenna, Ævintýri

Leikstjóri

Gavin Hood

Sýningartími

1klst 54mín

Helstu leikarar

Asa Butterfield, Abigail Breslin, Harrison Ford, Ben Kingsley

Eftir að hafa háð tvö dýrkeypt varnarstríð við ófrýnilegar geimverur sem kallast „pöddur“ undirbýr maðurinn nú viðbrögð við þriðju innrásinni.

Ender’s Game er ævintýra- og vísindaskáldsaga sem byggð er á samnefndri metsölu- og verðlaunabók rithöfundarins Orsons Scott Card. Með aðalhlutverkin fara þau Asa Butterfield, Harrison Ford, Ben Kingsley,

Abigail Breslin og Viola Davis en leikstjóri er Gavin Hood sem gerði m.a. myndirnar Tsotsi og X-Men Origins: Wolverine.

Ender Wiggin er ungur drengur, gæddur óvenjulegum hæfileikum sem yfirmenn heraflans vilja að hann nýti til að hjálpa til í baráttunni við pöddurnar. 70 ár eru liðin frá síðasta stríði sem gerði næstum því út af við mannkynið og til að undirbúa bardagafólk sitt sem best undir þriðju innrásina hefur risastórri herþjálfunarstöð verið komið fyrir í geimnum þar sem tilvonandi foringjar eru æfðir undir átökin með því að etja kappi hver við annan.

Einn þeirra er Ender sem þrátt fyrir ungan aldur og litla reynslu virðist gæddur óvenjumiklu og djúpu innsæi þegar geimbardagar eru annars vegar og grípur til ráða sem enginn annar hefði getað látið sér detta í hug að framkvæma. En hefur hann það sem til þarf þegar alvaran blasir við?

FRÓÐLEIKSMOLAR

• Bókin sem myndin er byggð á þykir á meðal bestu vísindaskáldsagna sem skrifaðar hafa verið. Í framhaldi af henni skrifaði Orson Scott Card fleiri bækur um Ender Wiggin og má búast við að þær verði einnig kvikmyndaðar.

• Skoðið stórgóða heimasíðu myndarinnar á www.if-sentinel.com