Deliver Us From Evil
Deliver Us From Evil
Bönnuð innan 16 ára
Kvikmyndategund
Spenna, Hryllingur
Leikstjóri
Scott Derrickson
Sýningartími
1klst 58mín
Helstu leikarar
Eric Bana, Olivia Munn, Joel McHale
Lögreglumaðurinn Ralph Sarchie (Eric Bana) hefur séð sinn skerf af óhugnaði í myrkum strætum suðurhluta Bronx-hverfisins í New York. Viðurstyggðin er slík að myrkrið er farið að hreiðra um sig í huga Sarchies, og kemur niður á fjölskyldunni hans; eiginkonunni Jen (Olivia Munn) og lítilli dóttur þeirra Christinu (Lulu Wilson). Þegar Sarchie er fenginn til að rannsaka röð óútskýranlegra og dularfullra glæpa fær hann prestinn Mendoza (Edgar Ramirez) sem kann að framkvæma andasæringar í lið með sér. Smám saman kemur í ljós að óhugnanleg og djöfulleg öfl sem herja á New York borg og Sarchie neyðist til að kasta öllum hugmyndum sem hann hafði fyrir um heiminn og grípa til óhefðbundinna aðgerða til að vernda fjölskylduna fyrir frumstæðri illskunni sem ásækir þau.