Frumsýnd 3.10.2026
Così fan tutte
Così fan tutte
Leyfð
Kvikmyndategund
Ópera
Leikstjóri
Nimrod David Pfeffer
Sýningartími
3klst 35mín
Helstu leikarar
Federica Lombardi, Samantha Hankey, Ana María Martínez, Duke Kim, Andrey Zhilikhovsky, Gerald Finley
The Met: Live in HD-serían hefst með háðslegri gamanóperu Mozarts um óútreiknanlega ást ungs fólks, einu af háleitustu verkum tónskáldsins. Sýning Phelims McDermotts, sem The New York Times lýsir sem „litríku og hugmyndaríku“, sækir innblástur til Coney Island á sjötta áratugnum og færir hinn bráðfyndna söguþráð á skemmtigarð við strandgötu. Þar lenda ástfangnu pörin tvö, sem eru í miðju sögunnar, í hverri tilfinningaþrunginni – og bókstaflega – rússíbanareiðinni á fætur annarri.
Sópransöngkonan Federica Lombardi og mezzósópransöngkonan Samantha Hankey fara með hlutverk Fiordiligi og Dorabellu, á móti tenórnum Duke Kim og barítóninum Andrey Zhilikhovsky sem Ferrando og Guglielmo. Bassabarítóninn Gerald Finley snýr aftur í hlutverk hins kaldhæðna Don Alfonso og sópransöngkonan Ana María Martínez fer með hlutverk hnyttnu þjónustustúlkunnar Despinu.