Leikstjórinn Wes Craven er fallinn frá
Það eru margir sem að kannast við nafnið Wes Craven en ferill hans sem leikstjóra, framleiðanda og handritshöfundar spannar tugi ára en hann var þekktastur fyrir að leikstýra hinum ýmsu hryllingsmyndum. Wes Craven lést þann 30.ágúst s.l. eftir baráttu við heilakrabbamein þá 76 ára að aldri en hann lætur eftir sig eiginkonu og tvö fullorðin börn sem að hann eignaðist með fyrstu eiginkonu sinni. Wes skrifaði handrit, framleiddi og leikstýrði fjöldanum öllum af kvikmyndum á ferli sínum en hann var líklega þekktastur fyrir allar hrollvekjurnar en þær frægustu sem að hann lætur eftir sig eru líklega A Nightmare on Elm Street myndirnar, Scream myndirnar, The Hills Have Eyes og The Last House On the Left en ferlinn hans byrjaði árið 1972 og stóð alveg fram til árins 2015. Það er á hreinu að það eru margir sem eiga eftir að sakna þessa merka manns sem að svo sannarlega markaði sín spor í sögu hryllingsmyndanna.