Hasarmyndin Point Break er komin í kvikmyndahús

Fantaflott hasarmynd með Luke Bracey í aðalhlutverki

Point Break er endurgerð af samnefndri kvikmynd sem að kom út árið 1991 og naut sú mynd gríðarlegra vinsælda en það voru þeir Keeanu Reeves og Patrick Swayze sem að fóru með aðalhlutverkin í þeirri mynd en í þessari nýju mynd þá eru það Luke Bracey og Édgar Ramiírez sem að fara með aðalhlutverkin. Myndin segir frá jaðarsportkappanum Johnny sem að ákveður að ganga til liðs við FBI og hans fyrsta verkefni er að komast að því hvaða menn standa á bakvið dularfulla glæpi. Johnny leggur allt undir og innan skamms er hann kominn inn í raðir þessara dularfullu glæpamanna og þá byrjar ballið. Point Break er stútfull af hasar og flottum áhættuatriðum en með aðalhlutverkin fara Luke Bracey, Édgar Ramírez, Teresea Palmer, Ray Winstone og Delroy Lindo en leikstjórinn heitir Ericson Core en hann hefur verið lengi í kvikmyndabransanum en hann hefur hingað til að mestu haft yfirumsjón yfir kvikmyndatöku í fjöldamörgum myndum en Point Break er komin í kvikmyndahús.