Deadpool hélt toppsætinu vestanhafs

Hasarmyndin Deadpool hélt toppsætinu vestanhafs

Það var hasarmyndin Deadpool sem að hélt toppsætinu aðra helgina í röð vestanhafs en óhætt er að segja að þessi mynd er að slá rækilega í gegn á heimsvísu en myndin þénaði 55 milljónir dollara yfir helgina en í öðru sæti er teiknimyndin Kung Fu Panda 3 með 12,5 milljónir dollara. Í þriðja sæti er ný mynd sem heitir Risen en hún þénaði 11,8 milljónir dollara og í fjórða sæti er ný hrollvekja sem að heitir The Witch með 8,7 milljónir dollara og í fimmta sæti er gamanmyndin frábæra How To be Single með 8,2 milljónir dollara.