Selena Gomez er á lausu

Söngvaraparið endar sambandið eftir 10 mánuði

Söngfuglarnir Selena Gomez og The Weeknd hafa bundið enda á 10 mánaða samband sitt en þau hættu saman fyrir nokkrum dögum eftir að hafa verið par í 10 mánuði. Þau njóta bæði gríðarlegra vinsælda í tónlistarbransanum enda eru þau bæði alveg frábærir listamenn. Selena hefur undanfarið sést með einum af sínum fyrrverandi en það er Justin Bieber en áður en The Weeknd byrjaði með Selenu Gomez þá var hann í nokkurn tíma með fyrirsætunni Bellu Hadid.