Gleymdist lykilorðið ?

The Big Wedding

Frumsýnd: 26.6.2013
Dreifingaraðili: SAMfilm
Tegund: Gaman, Sumarmyndir
Lengd: 1h 29 min
Aldurstakmark: Leyfð
|

Fyrrverandi hjón ákveða að þykjast enn vera hamingjusamlega gift til að blekkja tilvonandi tengdamóður í væntanlegu brúðkaupi sonar síns! Það er heill her úrvalsleikara sem fer með aðalhlutverkin í þessari grínveislu leikstjórans og handritshöfundarins Justins Zackham sem skrifaði handritið að The Bucket List. Þau Don og Ellie (Robert De Niro og Diane Keaton) voru gift og eignuðust saman tvö börn, Lylu og Jared, auk þess sem þau ættleiddu soninn Alejandro frá Kólumbíu. Hjónabandinu lauk hins vegar og Don byrjaði að búa með Bebe (Susan Sarandon), bestu vinkonu Ellie.

Alejandro er nú að fara að kvænast en á við þann vanda að stríða að hin raunverulega móðir hans, sem er strangtrúuð og afar annt um hefðir, hefur ekki hugmynd um að þau Don og Ellie sem ættleiddu son hennar hefðu skilið. Alejandro vill ekki að hún viti hið sanna og til að forðast vandræðalegar uppákomur biður hann þau Don og Ellie að þykjast enn vera gift, svona rétt á meðan brúðkaupið stendur yfir.

Svo fer því að til að blekkja móður Alejandros flytur Bebe út um leið og Ellie flytur aftur inn á heimilið sem eitt sinn var hennar. Eins og gefur að skilja býður þetta upp á marga óæskilega árekstra og það er aldeilis óvíst hvort bragðist heppnist ... og þá með hvaða afleiðingum ...

FRÓÐLEIKSMOLAR



• The Big Wedding er byggð á frönsku myndinni Mon frère se

marie eftir leikstjórann og handritshöfundinn Jean-Stéphane Bron.