Gleymdist lykilorðið ?

Sabotage

Frumsýnd: 4.7.2014
Dreifingaraðili: SAMfilm
Tegund: Drama, Hasar
Lengd: 1h 49 min
Aldurstakmark: Bönnuð innan 16 ára
|

Schwarzenegger leikur foringja sérsveitar eiturlyfjadeildar lögreglunnar sem sinnir því hættulega verkefni að ráðast beint inn í greni glæpamannanna og uppræta þá og starfsemi þeirra í eitt skipti fyrir öll. Eftir eina slíka velheppnaða árás þar sem sveitin fann m.a. milljónir dollara fer glansinn hins vegar fljótt af þegar stór hluti peninganna hverfur og meðlimir sveitarinnar fá allir sem einn stöðu grunaðra þjófa hjá innra eftirlitinu. Ekki batnar ástandið þegar einhver, eða einhverjir, byrja að salla meðlimi sveitarinnar niður úr launsátri, einn af öðrum, og virðast hafa til þess upplýsingar sem enginn utan lögreglunnar ætti að hafa ...