Gleymdist lykilorðið ?

Bad Neighbours

Frumsýnd: 7.5.2014
Dreifingaraðili: Myndform
Tegund: Gaman
Lengd: 1h 36 min
Aldurstakmark: Bönnuð innan 12 ára
|

Frá leikstjóra Forgetting Sarah Marshall og Get Him to the Greek kemur ein ef ekki klikkaðasta partígamanmynd ársins. Segir hún frá nýbökuðu foreldrunum Mac og Kelly (Seth Rogen & Rose Byrne) sem eru nýbúin að koma sér fyrir með barnið sitt í rólegu úthverfi. Allt bendir í smástund til þess að þau séu búin að finna draumahúsið í hinu besta hverfi, en takturinn breytist aldeilis þegar menntaskólabræðralag flytur stuttu síðar í næsta hús. Skötuhjúin gera ráð fyrir því versta en þau eru fljót að vingast við forseta bræðralagsins, Teddy (Zac Efron), sem virkar í fyrstu almennilegur og viðkunnanlegur. Þegar Teddy svíkur loforð um að minnka hávaðann í partístandi sínu þá kallar Mac á lögregluna. Beint í kjölfarið upphefst látlaust stríð á milli litlu fjölskyldunnar og bræðralagsins. Atburðarásin fer hratt stigmagnandi og hlutirnir eru fljótlega komnir í háaloft, ekki síst þegar þessi skjálfti er farinn að hafa áhrif á samband bræðralagsins og menntaskólans.