Gleymdist lykilorðið ?

Jersey Boys

Frumsýnd: 8.8.2014
Dreifingaraðili: SAMfilm
Tegund: Drama, Tónlist
Lengd: 2h 15 min
Aldurstakmark: Bönnuð innan 12 ára
|

Jersey Boys eftir Clint Eastwood er byggð á samnefndum söngleik og sögu ungu mannanna sem skipuðu The Four Seasons og urðu heimsfrægir í byrjun sjöunda áratugs síðustu aldar. Um leið þurftu þeir að glíma bæði við það góða sem frægðinni fylgdi og það slæma. Söngleikurinn, sem var frumsýndur á Broadway árið 2005 og hlaut m.a. fern Tony-verðlaun, hefur síðan verið settur upp víða um lönd, þar á meðal í West End í London, Hollandi, Kanada, Suður-Afríku, Ástralíu og Singapore og hefur alls staðar notið gríðarlegra vinsælda enda afar skemmtilegur.