Gleymdist lykilorðið ?

Töfraríkið

Enchanted Kingdom, 2014

Frumsýnd: 10.4.2015
Dreifingaraðili: SAMfilm
Tegund: Heimildarmynd
Lengd: 1h 27 min
Aldurstakmark: Leyfð
|

Töfraríkið er einstæð mynd þar sem farið er með áhorfendur í stórkostlega ferð um móður jörð, allt frá tindum hæstu fjalla til hafsbotna. Töfraríkið er gerð af sömu aðilum og gerðu meistaraverkið Earth, en hér er nýjustu kvikmyndatækni beitt ásamt seiðmagnaðri tónlist til að ljúka upp náttúrutöfrum jarðarinnar um leið og áhorfendum finnst þeir hreinlega svífa um þær undraveraldir sem heimurinn hefur að geyma. Við ferðumst frá hæstu fjallatindum niður hlíðar, inn í dali og niður á sléttlendi, yfir ár og vötn og fossa og gægjumst út á ystu jaðra eld- og hraunspúandi gíga. Við komum við í regnskógunum, ferðumst út í eyðimerkurnar, út á sletturnar, kíkjum á þann hluta jarðar sem er alltaf frosinn og köfum undir yfirborð sjávar þar sem hver töfraveröldin rekur aðra. Í leiðinni kynnumst við lífinu sem náttúran hefur skapað, allt frá smæstu dýrum til hinna stærstu og samspili þeirra sín á milli og við móður jörð. Allt er þetta tekið upp með einstakri kvikmyndatækni sem fær áhorfendur til að standa á öndinni um leið og þeir átta sig á því að þeir eru í raun þátttakendur í þessu magnaða ævintýri.