Gleymdist lykilorðið ?

The Girl on the Train

Frumsýnd: 7.10.2016
Dreifingaraðili: SAMfilm
Tegund: Spenna
Lengd: 1h 52 min
Aldurstakmark: Bönnuð innan 16 ára
|

Hin fráskilda Rachel Watson tekur lestina á hverjum degi til New York og fer framhjá gamla húsinu sínu á leiðinni. Húsinu sem hún bjó í með eiginmanni sínum, sem býr þar enn, með nýrri eiginkonu og barni. Hún reynir að hugsa ekki of mikið um vanlíðan sína, og byrjar að fylgjast með pari sem býr nokkru neðar - Megan og Scott Hipwell. Hún skapar draumalíf fyrir þau í eigin höfði, um hvað þau er ótrúlega hamingjusöm fjölskylda. Og dag einn, þegar lestin fer framhjá, þá sér hún eitthvað sem slær hana, og hún reiðist. Næsta dag þá vaknar hún með rosalega timburmenn, allskonar meiðsli og marbletti, og man ekkert frá kvöldinu áður. Hún veit bara eitt - eitthvað slæmt gerðist. Þá sér hún sjónvarpsfréttirnar: Megan Hipwell er týnd. Rachel blandast inn í málið og reynir að finna út úr hvað gerðist, hvar hún er, og hvað hún sjálf var að gera þetta kvöld.