Gleymdist lykilorðið ?

RoboCop & Predator Double Feature

Frumsýnd: 23.11.2023
Dreifingaraðili: SAMfilm
Tegund: Hasar, Vísindaskáldskapur, Bíótöfrar
Lengd: 3h 29 min
Aldurstakmark: Bönnuð innan 16 ára
|

Sambíóin Kringlunni í samstarfi við bíóklúbbinn Bíótöfra bjóða upp á double feature á RoboCop og Predator. Hlé á milli mynda.

RoboCop

Í Detroit borg framtíðarinnar eru glæpir allsráðandi, og borginni er stjórnað af risafyrirtæki. Fyrirtækið hefur þróað risastórt vélmenni til að berjast gegn glæpunum, en vélmennið reynist vera gallað. Fyrirtækið sér möguleika í því að koma sér í mjúkinn hjá almenningi á ný þegar ákveðið er að endurbyggja lögreglumanninn Alex Murphy, sem er drepinn af glæpagengi. Murphy verður hálfur maður og hálfur vélmenni, en smíðuð er vél utanum það sem eftir er af líkama og heila Murphy, og fær nafnið RoboCop. RoboCop reynist mjög góður í að berjast við glæpagengi borgarinnar, og fljótlega heyrir ofurþorparinn Boddicker af honum, og vill koma honum fyrir kattarnef.

Predator

Hópur úrvalshermanna er sendur inn í frumskóg í Mið-Ameríku til að uppræta eiturlyfjahring. Fljótlega verða kapparnir varir við óvætt frá framandi plánetu, sem situr um þá. Hefst þá leikur kattarins að músinni.