Gleymdist lykilorðið ?

Dune: Double Feature

Frumsýnd: 28.2.2024
Dreifingaraðili: SAMfilm
Tegund: Drama, Hasar, Ævintýri
Lengd: 5h 20 min
Aldurstakmark: Bönnuð innan 12 ára
|

Sérstök tvöföld sýning þar sem við sýnum bæði Dune (2021) og Dune: Part Two (2024) með stuttu hléi á milli kvikmyndina.

Dune fjallar um Paul Atreides, fjölskyldu hans og baráttu þeirra við Harkonnen-ættina um plánetuna Arrakis, sem einnig kallast Dune. Sagan gerist í ítarlegum söguheimi. Heilar mannfólks eru þjálfaðir í að framkvæma gífurlega flókna útreikninga og menn hafa náð mun meiri stjórn á hugsunum sínum og líkömum. Á plánetunni Arrakkis finnst Kryddið svonefnda, sem gerir mönnum kleift að efla heila sína enn frekar og meðal annars stýra geimskipum langar vegalengdir. Plánetum í þessum söguheimi er stjórnað af aðalsættum og þeim er stýrt af keisara. Atreides-ættin tekur við stjórn Arrakis af Harkonnen-ættinni að skipan keisarans og á Leto Atreides að auka framleiðslu krydds en keisaraveldið stendur og fellur með því að tryggja framleiðslu efnisins.