30.Ára afmælisleikur SAMbíóanna 20.Milljónasti gesturinn væntanlegur!
6stk. af iPad 2 - 16GB Wi-Fi frá OK-Búðinni (Andvirði 89.990 kr. stk.)
Stutt lýsing
Nýr iPad 2! Hraðvirkari, 33% þynnri og allt að 15% léttari. FaceTime. HD upptaka. Tveggja-kjarna A5 örgjörvi.
í iOS 4.3 stýrikerfinu fyrir iPad fylgir m.a. netvafri, póstforrit, margmiðlunarspilari, dagatal, YouTube, skipuleggjari, skrifblokk og fleira. Hægt er að nálgast hundruði þúsunda „Apps“ eða forrit og leiki á App Store sem er innbyggt í iPad.
Nýir fídusar í iOS 4.3 er m.a. FaceTime (vídeó spjall) Photo Booth.
Einnig er innbyggt AirPrint og AirPlay sem gerir manni kleift að prenta og spila tónlist og myndbönd þráðlaust í jaðartæki sem það styðja. Multi-tasking, möppur og Game Center er einnig hluti af nýja stýrikerfinu.
BÍÓKORT MEÐ ÁRS-INNEIGN
Nú bjóða Sambíóin upp á skemmtilega nýjung, Bíókortið. Bíókortið er leið fyrir viðskiptavini til að fá ódýrara í bíó og greiða fyrir bíómiða og vörur í Sambíóunum. Hægt er að fylla á kortin á netinu og í miðasölum Sambíóanna. Fyrst um sinn eru bíókortin afgreidd í miðasölu Sambíóanna í Álfabakka. Einnig er hægt að kaupa miða áwww.sambio.is.
Bíófrelsi eru rafrænir voucherar/inneignir sem tengjast við notendaprófíl viðskiptavinar
Öll miðakaup með kortinu telja einnig inn á loyalty kerfi Sambíóanna og því er þetta tilvalin leið til að skemmta sér á ódýrari hátt.
DVD MYNDIR
DRIVE
Kvikmyndin Drive hefur fengið einróma lof gagnrýnenda, en hún fékk Gullpálmann í fyrra á kvikmyndahátíðinni í Cannes fyrir leikstjórn Nicolas Winding Refn og var tilnefnd til aðalverðlaunanna sem besta mynd ársins.
Myndin segir frá áhættubílstjóra sem nefndur er Driver, en hann er gæddur snilldarhæfileikum í faginu. Umboðsmaður hans, Shannon, er duglegur við að koma honum á framfæri við kvikmyndaframleiðendur en græðgi hans hefur einnig gert það að verkum að Driver tekur að sér kvöld- og næturstörf fyrir þjófa sem þurfa á flóttabifreið að halda.
Dag einn kynnir Shannon Driver fyrir hinum auðuga bófa Bernie Rose sem sér þegar hvaða hæfileikum Driver er gæddur og samþykkir að ráða hann í vinnu. Það, ásamt því að á sama tíma hittir Driver unga konu sem heillar hann upp úr skónum, setur í gang ófyrirsjáanlega atburðarás sem á heldur betur eftir að reyna á hvort Driver getur verndað bæði sjálfan sig og þá sem standa honum næst.
The Help
Hin margverðlaunaða mynd The Help hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda jafnt sem áhorfenda og var tilnefnd til fimm BAFTA-verðlauna og sex Óskarsverðlauna.
Það er Emma Stone sem fer með hlutverk hinnar forvitnu og réttlátu Skeeter sem snýr aftur til heimabæjar síns eftir nám við virtan háskóla. Hún á sér þann draum að verða rithöfundur.
Skeeter verður strax völd að umróti á meðal bæjarbúa þegar hún lætur í ljós vilja til að taka viðtöl við hörundsdökkar þjónustustúlkur sem starfað hafa fyrir ríku, hvítu fjölskyldurnar í bænum. Skeeter er harðlega gagnrýnd bæði af sínum eigin vinum og öðrum sem finnst ekki viðeigandi að taka slík viðtöl.
En brátt kemur þjónustustúlkan Abileen (Viola Davis) fram og samþykkir að tala við Skeeter. Þrátt fyrir að þær afli sér báðar óvinsælda með þessu skrefi halda þær ótrauðar áfram og smám saman koma fleiri þjónustustúlkur fram sem vilja segja sögu sína og áður en yfir lýkur munu sögur þessara kvenna breyta bæði bænum sjálfum og íbúum hans til frambúðar…
Bangsímon - Glæný saga af Bangsímon og vinum hans
Vinalegi bangsinn Bangsímon er mættur til leiks á ný í glænýrri sögu þar sem hann og vinir hans í Hundraðmetraskógi lenda í ýmsum ævintýrum eins og þeim einum er lagið.
Eins og svo oft áður rekur löngun Bangsímons hann til að næla sér í dálítið hunang frá býflugunum sem eru alls ekki á því að láta það af hendi. Bangsímon þarf því að flýja eins og fætur toga, ekki í fyrsta skipti og ekki það síðasta.
Seinna misskilur Bangsímon bréf frá Robin og sannfærist um að honum hafi verið rænt af einhverjum sem kallar sig „Kembráðum Aftur“. Til að bjarga Robin safnar Bangsímon öllum vinum sínum saman og það er ákveðið að bjarga drengnum áður en það verður um seinan.
Á meðan á Eyrnaslapi í vanda því hann vantar nýjan hala. Af þessum sökum er hann einstaklega niðurdreginn en auðvitað finna félagar hans leið til að hressa hann við.
TÖLVULEIKIR
BATMAN ARKHAM CITY
Einn besti tölvuleikur síðasta árs. Óhætt að fullyrða að allir tölvuleikjaunnendur verða ekki sviknir af þessum leik.
Batman: Arkham City byggir á grunninum á Batman: Arkham Asylum og sendir spilarann í gegnum Arkham-borgina sem er nýtt hámarksöryggis“heimili” fyrir alla þjófa, glæpamenn og geðsjúka menn Gotham borgar.
Sögusvið leiksins er innan veggja Arkham City í miðsvæði Gotham borgar. Leikurinn sem margir Batman aðdáendur hafa beðið eftir kynnir til leiks nýtt lið af klassískum karakterum og hrottalegum illmennum frá Batman heiminum og einnig vítt svið af nýju og bættu leikkerfi til að skila bestu upplifun sem sjálfur „Svarti Riddari“ Gotham.
Lord of the Rings War in the North
Leikur sem þarft vart að kynna byggður á hinum gríðarlegu vinsælu bókum eftir J.R.R. Tolkien. Fantasíuheimar verða ekki flottari en þetta.
The Lord of the Rings: War in the North er ákafur hasar RPG tölvuleikur fyrir allt að þrjá leikmenn, og er byggður á skáldsögunum og kvikmyndunum The Lord of the Rings. Leikmenn berjast í stríðshrjáðum löndum í norðanverðum Miðgarði, í ferð sem sjálfur Gandalfur taldi mikilvæga til að koma hringnum eina til Mordor – í þeim tilgangi að sigra sveitir Saurons í norðri. Leikurinn er sá fyrsti í Lord of the Rings-seríunni sem sýnir verulega þroskað og grimmt eðli Miðgarðs og með nýstárlegri og gagnvirkri netspilun fyrir þrjá leikmenn sem mynda sitt eigið förurneyti og með hjálp hins mikla
arnar Belaram opnar leikurinn nýjar víddir. Leikmenn verða að spila saman eða farast á leið sinni í gegnum áður óséð lönd, söguþræði og persónur. Þetta er ekki bardagi einhvers annars. Þetta er þitt stríð.
Það eina sem þú þarft að gera til að taka þátt í 30 ára afmælisleik Sambíóanna er að skrá þig inn á sambio.is og stofna reikning*. Dregið verður síðan úr virkum notenda reikningum á Sambio.is Einfaldara verður það ekki, skráðu þig http://www.sambio.is/MyPage/